Viðhald í Vesturbænum

Hér er grein eftir mig sem birtist í Vesturbæjarblaðinu einhvern tímann árið 2005. Hún fjallar um litla lausn á bílastæðavandanum og viðhaldi gatna og gangstétta.  

Einföld lausn á sívaxandi bílastæðavandamáli

 Víða í Vesturbænum eru bílastæði af skornum skammti og götur þröngar. Oft hagar því þannig til að bílastæði eru merkt einungis öðru megin, án þess þó að bannað sé að leggja hinum megin. Göturnar eru þó oft þröngar og því ekki er raunhæft að leggja bílum beggja vegna, - ja, nema með því að tylla bílunum örlítið upp á gangstétt. Samkvæmt skýrum ákvæðum umferðalaga er það þó óheimilt. Það hefur þó verið tíðkað víðast hvar í Vesturbænum enda annað ekki mögulegt.Dæmi um þessar aðstæður má taka af einstefnugötunum í Vesturbænum (t.d. allar -vallagöturnar, Hávallagata, Ljósvallagata, Brávallagata o.fl.) þar sem bílastæði eru eingöngu vinstra megin og af skornum skammti, íbúar margir og jafnvel mannfrek starfsemi í nágrenninu svo sem í tilfelli Brávallagötu þar sem er hjúkrunarheimilið Grund. Gangstéttar eru hins vegar gjarnan breiðar og því hafa íbúar þessara gatna nýtt sér það að vel er hægt að leggja bílum við gangstétt hægra megin við göturnar. Vissulega leitast menn eftir að leggja í þar til gerð bílastæði en á daginn er mikið um utanaðkomandi bíla og á kvöldin nægja stæðin engan veginn öllum íbúum. Þá er ekki um annað ræða en að leggja við og örlítið uppá gangstéttina. Engin hætta stafar af þeirri lausn og umferð gangandi vegfarenda er fráleitt hindruð. Bílastæðasjóður hefur hins vegar herjað markvisst á vissar götur í Vesturbænum og sektað íbúa fyrir stöðubrot, jafnvel þótt gangstéttir séu þar breiðar og augljóslega sé ekki verið að hindra för gangandi vegfarenda með þessum hætti. Þá hefur gætt mikils ósamræmi í sektum bílastæðaverða, með þeim hætti að bifreiðar í ákveðnum götum eru stöðugt sektar en ekki bifreiðar í næstu götu þar sem þó háttar alveg eins til.  Lausn í sjónmáli?Þótt þetta hljómi sem óleysanlegt vandamál í ljósi skorts á auðum lóðum í Vesturbænum þá má leysa það að hluta með tiltölulega einföldum hætti. Með því að heimila bifreiðastöður að hluta upp á gangstétt þar sem aðstæður leyfa (gagnstétt það breið að ekki hindri för vegfarenda) væri komið til móts við íbúa þessara þéttbýlu hverfa. Þetta er alþekkt í Evrópu þar sem sérstök skilti gefa vísbendingu um að heimilt sé að tylla hjóli upp á gangstétt. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur kynnt þessa hugmynd í umhverfisráði borgarinnar. Það er mikilvægt að þessi mögulega lausn verði skoðuð fordómalaust af þeim sem hafa það í hendi sér að fækka bílastæðavandamálunum. Já, líka af þeim vinstri mönnum sem virðast hafa unun af því að andskotast út í einkabílinn.  Fleira brýnt að bæta úr í VesturbænumAnnað tengt umferðarmenningu gamla bæjarins er sú staðreynd að götur í Vesturbænum eru orðnar svo illa farnar af ofmalbikun að þær eru eins og uppábúið rúm (orðnar bungulaga). Eldra fólk á mjög erfitt með að komast út úr bílum sínum ef þeir eru ekki réttir af með því að tylla þeim upp á gangstétt. Í mikilli hálku skapast og hætta á að bílar á ferð renni til hliðar og valdi tjóni á bílum sem þar er lagt. Þá hefur ekkert verið hugað að umferð gangandi vegfarenda í Vesturbænum því gangstéttir þar eru víðast orðnar svo úr sér gengnar að fólki stafar beinlínis hætta af. Það er sérstaklega áberandi í kringum elli- og hjúkrunarheimilið Grund þar sem eldri borgarar eru gjarnan á ferli. Áður en miklum tíma og peningum er eytt í að skipuleggja nýja byggð í nágrenni Vesturbæjarins, eins og Vatnsmýrarævintýrið er dæmi um, er ekki ósanngjarnt að fara fram á að menn sýni að þeir séu þess megnugir að halda við þeirri byggð sem hefur verið til staðar í borginni í yfir 100 ár. Það er tími til kominn að borgaryfirvöld hugi að endurbótum og viðhaldi á þessum elsta hluta borgarinnar. 

Previous
Previous

Þekkir þú einhver dæmi þess?

Next
Next

Að leggja sitt af mörkum