Fréttir frá fjarlægu landi

dunes-4461128_1280.jpg

Lífskjör lítillar þjóðar sem byggir allt sitt á útflutningi hvíla á góðum samskiptum yfir landamæri.Íslendingar hafa sinnt þróunaraðstoð í ýmsum löndum. Markmiðið með slíkri aðstoð er að hjálpa fólki sem höllustum fæti stendur í lífsbaráttunni, jafnvel þrátt fyrir ríkulegar auðlindir, að hjálpa sér sjálft. Íslendingar hafa margt fram að færa þegar kemur að nýtingu náttúruauðlinda. Íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. Rannsóknir og nýting á jarðhita er hér í blóma.Íslensk stjórnvöld vörðu á öðrum milljarði króna í aðstoð við Namibíu á um tuttuga ára tímabili. Einkum til þróunar í sjávarútvegi. Fyrirtæki tengd Íslandi fylgdu í kjölfarið og héldu þannig áfram þróunarstarfi á viðskiptalegum forsendum. Fátt er fátækum ríkjum mikilvægara til langframa en starfsemi sem stendur undir sér.Í Kveik, fréttaþætti RÚV, í gær var fjallað starfsemi Íslendinga í Namibíu að þróunarsamvinnunni lokinni. Þar var dregin upp dökk mynd af þeim kröfum sem namibískir ráðamenn gera til þeirra sem vilja stunda fiskveiðar við landið, þar á meðal til fyrirtækja í eigu Íslendinga. Þar til bær yfirvöld virðast ef marka má fréttir hafa tekið þessi mál til skoðunar og engin ástæða til að ætla annað en að það veðri gert af vandvirkni. Um leið er ástæða til að minna þingmenn á að þeir fara ekki með ákæruvald í málum sem þessum eins og ætla mætti af orðum sumra þeirra í dag. Þeir sem bornir eru sökum eiga að fá tækifæri til að verjast þeim í réttarkerfinu. Dómar eru hvorki kveðnir upp í fjölmiðlum né í þingsal. Umfjöllunin gefur hins vegar tilefni til þess að velta nokkrum þáttum fyrir sér.Þróunaraðstoð á afmörkuðu sviði, eins og t.d. sjávarútvegi, hlýtur að taka mið af aðstæðum í landinu að öðru leyti. Spurningar sem gæslumenn almannafjár á Íslandi hljóta að spyrja áður en fé er veitt til þróunaraðstoðar eru t.d.: Er líklegt að afrakstur þróunaraðstoðar, t.d. uppbygging innviða, fái að njóta sín til langframa? Eru til staðar innviðir sem verja eignarréttinn og önnur grundvallarmannréttindi? Spilling er landlæg í þróunarlöndum, og oftast helsta orsök fátæktar þar. Er líklegt að dragi úr henni með þróunaraðstoð? Getur verið að opinber þróunaraðstoð festi fremur spillingu í sessi en að draga úr henni? Hver er reynsla starfsmanna íslensku þróunaraðstoðarinnar í gegnum tíðina? Verða þeir aldrei varir við spillingu? Þessar spurningar og fleiri verða til umfjöllunar í utanríkismálamálanefnd á næstu vikum.Það var ekki að ástæðulausu að á vettvangi OECD var árið 1998 gerður samningur um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum. Íslensk löggjöf hefur frá þeim tíma tekið breytingum í átt að markmiðum samningsins. Síðast að mínu frumkvæði árið 2018 er almennum hegningarlögum var breytt í átt til samræmis við samninginn. Það er verðugt verkefni að reyna að uppræta spillingu í alþjóðlegum viðskiptum og íslensk stjórnvöld taka heilshugar þátt í því. Það er vert að íslenskt atvinnulíf gefi þessari löggjöf gaum. Hún varðar bæði einstaklinga og fyrirtæki.Hitt er svo að það er ekki hægt að skrifa það á reikning íslensku þjóðarinnar, íslensks atvinnulífs, einstakra atvinnugreina eða íslenskra stjórnmála hvernig t.d. namibískir stjórnmálamenn haga sér í samskiptum við einkafyrirtæki, jafnvel þótt íslensk séu í einhverjum tilvikum eða tengd íslenskum aðilum. Menn bera nefnilega aðallega ábyrgð á sjálfum sér en ekki öðrum, jafnvel þótt landar séu.Mynd frá Namibíu: Susanne Stöckli af Pixabay.

Previous
Previous

Hókus pókus

Next
Next

Vilja banna pálmaolíuna sem þau skylduðu okkur að nota á bílana