Sótsvört neyslustýring
Á síðasta kjörtímabili voru skattar á bensín og bensínbíla hækkaðir verulega umfram skatta á dísilolíu og dísilbíla. Þessi neyslustýring skýrir hvers vegna bensínlítrinn er 10-15 krónum dýrari á bensínstöðvunum en dísillítrinn og hví sumar tegundir bensínbíla eru vart fáanlegar í bílaumboðum lengur.En er þessi mismunun gegn bensínbílnum ekki réttlætanleg vegna mengunar? Nei. Bensínbíll kann vissulega að gefa frá sér nokkuð meira af gróðurhúsalofttegundum en sambærilegur dísilbíll. Aðeins má þó rekja um 4% af heildarútblæstri gróðurhúsalofttegunda hér á landi til bíla. Það hefur því litla þýðingu að eltast við bíleigendur sé ætlunin að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi svo nokkru nemi. Frá dísilbílnum streymir hins vegar margfalt meira sót og svokölluð NOx en frá bensínbílum. Sót og NOx eru talin skaða öndunarfæri vegfarenda. Það er því í meira lagi hæpið að skattleggja eigi bensínbíla meira en dísilbíla vegna mengunar.Dísilbílar eru almennt dýrari í innkaupum til landsins en bensínbílar og varahlutir trúlega líka. Það kemur því ekki á óvart að þar sem skattlagning er hlutlaus og engin neyslustýring til staðar eru bensínbílar vinsælli en dísilbílar. Þetta var raunin hér á landi þar til hreina vinstri stjórnin skattlagði bensínbílana út af markaðnum. Dísilbílar hafa vissulega sína kosti en ekkert virðist réttlæta að bensínbílar séu skattlagðir umfram dísilbílana.Mér sýnist því niðurstaðan af þessari neyslustýringu vera sú að landsmenn hafi á undanförnum árum keypt dýrari og meira mengandi bíla en þeir hefðu ella gert. Hreina vinstri stjórnin ýtti undir óhreinni útblástur frá bílaumferð, og það jafnvel áður en tekið er tillit til nýlegra frétta af mengunarvarnarbúnaði dísilbíla.Það er mikil þróun í hönnun bíla þessi misserin. Ný tæki og nýjar útfærslur á gamalli tækni skjóta daglega upp kollinum. Ekki er gott að spá um hvað af þessari tækni nær fótfestu. Þess vegna er mikilvægt að stjórnvöld gæti hlutleysis við skattlagningu og lagasetningu um þessi mál. Það er ekki til velfarnaðar að við stjórnmálamenn reynum að stýra þessari tækniþróun.Greinin birtist í Fréttablaðinu og á Vísi 28. apríl 2016. / saa@althingi.is